Námskeið mars 2021
AFSTEMMINGAR – HVERNIG GETUM VIÐ AUÐVELDAÐ OKKUR ÞÆR!
Gæti skilað þér lengra og hjálpað þér með hefðbundin verkefni.
Námskeið á ZOOM með Ingu Jónu Óskarsdóttur hjá „Bókhald og kennsla“. Fimmtudaginn 25. mars frá kl. 9 til 12
ATH. Fyrirlestrinum verður sendur út á Zoom. Linkur til að taka þátt í fyrirlestrinum verður sendur á þátttakendur daginn áður.
Af hverju þetta námskeið
Afstemmingarvinna okkar bókara, getur verið ýmiskonar og oft er gott að sjá vinnubrögð annara og
miðlun þekkingar á þessu sviði vekur okkur oft upp úr “gömlum” vanaföstum farvegi. Hvaða tæki
getum við nýtt til að stemma af, bókhaldskerfin sjálf, stemmarann, excel …… Afstemmingar eigna og
skuldaliði, tökum sýnishorn af nokkrum tegundum mismunandi vinnubragða, til að sýna okkur hvernig
við vinnum og aðrir vinna. Erum við nógu dugleg að nota “jafnanatækni” kerfanna sem og
bankaafstemmingar í kerfunum sjálfum ?.
Markmið námskeiðsins
Þátttakendur kynninst og læri að nýta sér nýja tækni, sem og aukatæki eins og excel. Skoðum nokkur bókhaldskerfi aðeins betur !
Fyrir hverja er námskeiðið?
§ Þá sem hafa áhuga á að kynna sér vinnubrögð annara
§ Þá sem vilja rifja upp hvað hægt er að gera og finna vonandi nýjar leiðir.
§ Þá sem eru að vinna úr upplýsingum úr upplýsingakerfum og þurfa klára allar afstemmingar fyrir haghafa
§ Þá sem hafa áhuga á að nýta tímann sinn betur með því að beita nýjum vinnuaðferðum
Um námskeiðið
Námskeiðið er stutt hagnýtt námskeið um hvernig
og hvar megi nýta betur tækni. Ath. Aðeins 25 manns í hverjum hóp
Verð: Félagsmenn kr. 6.900 Utanfélagsmenn kr. 8.900
Athugið aðeins 25 manns í hóp svo allir fái sem mest útúr námskeiðinu.
Við munum svo bæta við fleiri námskeiðum eftir þörfum.
ATH Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til þátttöku á námskeiðinu. Námskeiðið gefur 4,5 endurmenntunarpunkta.
Skráning er á vef FVB til og með þriðjudagisins 23. mars nk.
Bókhald og kennsla í samvinnu við Félag viðurkenndra bókara
Inga Jóna Óskarsdóttir, viðurkenndur bókari
Fræðslunefndin