Námskeið í aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
Ert þú bókari sem starfar fyrir þriðja aðila? Þá er þetta námskeið fyrir þig.
Samkvæmt lögum nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka eru bókarar sem veita bókhaldsþjónustu fyrir þriðja aðila tilkynningarskyldir aðilar. Þeim ber m.a. að framkvæma áreiðanleikakönnun á viðskiptavinum sínum, vinna áhættumat á eigin rekstri og tryggja reglubundna fræðslu og þjálfun um skyldur sínar samkvæmt lögunum. Eftirlitsaðilar gera ráð fyrir að slík endurmenntun fari fram árlega.
Á námskeiðinu verður m.a. farið yfir:
· Nýjustu ákvarðanir/sáttir og áherslur Skattsins gagnvart bókurum og skyldum stéttum.
· Fjármögnun gereyðingarvopna.
· Erlenda lögaðila og helstu áhættuþætti.
· Tékklista bókarans vegna eftirlits Skattsins. Erum við tilbúin undir eftirlitið?
· Helstu breytingar og framkvæmd áhættumats.
Sérstakur ávinningur
Þeir sem hafa keypt áhættumat á eigin rekstur í gegnum FVB og FBB/FBO fá uppfærslur á því á námskeiðinu.
Kennari
Guðlaug Ingvadóttir, viðurkenndur bókari.
Hagnýtar upplýsingar
24. september 2026
Kl. 09:00–10:30
Haldið á Zoom / Teams
Verð: 8.500 kr.
Skráning fer fram á FVB.is.
Vertu viss um að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til tilkynningarskyldra aðila og fáðu jafnframt yfirlit yfir nýjustu breytingar og áherslur sem snerta starf bókara.
Lög nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, einkum 5. gr. (áhættumat) og 36. gr. um fræðslu og þjálfun starfsmanna. Nánari leiðbeiningar um framkvæmd eru birtar af Skattinum.