Gervigreind – Betri skipanir, betri svör
FVB í samstarfi við NTV – Promennt
Höfum við ákveðið að bjóða uppá alvöru AI námskeið/vinnustofu. 17. og 19. febrúar kl. 9-12
Hagnýtt, tveggja daga námskeið í notkun mállíkana (e.AI) með áherslu á skipanir og spjallaðstoð. Kennslan er verkleg og byggir á raunhæfum dæmum. Nemendur vinna sjálfir við tölvur með aðgang að ChatGPT og öðrum sambærilegum mállíkönum.
Ef þú ætlar að velja þér eitt námskeið til að fara á á þessu ári þá mælum við með þessu.
Hvetjum ykkur til að lesa lýsingu á námskeiðinu sem er hér fyrir neðan.
Kennari á þessu námskeiði er Ólafur Kristjánsson „Óli Tölva“ Hann hefur starfað í mörg ár sem tölvukennari. Undanfarið hefur hann verið mikið með kynningar á gervigreind og hefur nú í samstarfi við NTV-Promennt hannað þetta námskeið/vinnustofu.
Staður, stund og verð:
Tveggja daga námskeið: Þriðjudag og fimmtudag 17. og 19. febrúar frá
kl. 9.00 – 12.00.
Í boði er bæði staðarnám hjá NTV-Promennt, Hlíðarsmára 9, Kópavogi eða á Teams
VERÐ AÐEINS KR. 32.850 – Fullt verð er annars kr. 76.500
Aðeins 18 manns í hverjum hóp – lágmarks þátttaka þarf til að námskeiðið fari af stað.
ATH. Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til þátttöku á námskeiðinu.
Námskeiðið gefur 9 endurmenntunarpunkta
ATHUGIÐ – SKRÁNING ER BINDANDI – FORFÖLL EÐA AFSKRÁNING ÞARF AÐ BERAST FVB@FVB FYRIR 15. FEBRÚAR
Skráning er á vef FVB til og með 15. febrúar
Nánari upplýsingar um námskeiðið – frá NTV-Promennt
Námslýsing Almennt um námið
Hagnýtt, tveggja daga námskeið í notkun mállíkana (e. AI) með áherslu á skipanir (e. prompts) og spjallaðstoð (e. Agents), sérstaklega með notkun í atvinnulífi, markaðsetningu og rekstri. Kennslan er verkleg og byggir á raunhæfum dæmum. Nemendur vinna sjálfir við tölvur með aðgang að ChatGPT og öðrum sambærilegum mállíkönum. Skilyrði fyrir þátttöku: Nemendur verða að vera með virka áskrift að ChatGPT.
Fyrir hverja?
Námskeiðið er ætlað einstaklingum í atvinnulífi sem vilja efla hagnýta notkun sína á gervigreind og mállíkönum í
daglegum störfum.
Námskeiðið hentar sérstaklega:
• Starfsfólki í markaðssetningu, miðlun og efnisgerð.
• Stjórnendum og sérfræðingum sem vilja nýta AI markvisst í rekstri.
• Þeim sem hafa sótt grunnnámskeið í AI eða ChatGPT og vilja byggja ofan á þá þekkingu.
• Aðilum sem vilja þjálfa sig í að skrifa betri og markvissari skipanir.
Markmið
Að loknu námi eiga þátttakendur að:
• Geta skrifað vandaðar, skýrar og áhrifaríkar skipanir fyrir fjölbreytt verkefni.
• Beitt skipunum markvisst í markaðssetningu, efnisgerð og greiningu.
• Skilja hvernig skipanir móta hegðun mállíkans og niðurstöður.
• Geta notað AI til að framleiða, betrumbæta og greina gögn og texta fyrir atvinnulífið.
• Geta sett upp og notað spjallaðstoð (Agent) eða spjallbotta með sérsniðnum gögnum og skipunum.
• Hafa öðlast hagnýta færni í að nota AI sem vinnuverkfæri.
• Hafa lært nýja nálgun við að láta gervigreind vinna markvisst fyrir sig í stað þess að nota hana eingöngu til spurninga
og svara.
Námsþættir Dagur 1 – Mállíkön og skipanir (e. Prompts)
• Grunnur mállíkana.
o Glærukynning um mállíkön.
o Hvernig mállíkön eru uppsett.
o Hvernig AI „skilur“ texta og bregst við skipunum.
• Skipanir (e. Prompts).
o Hvað er skipun?
o Hvernig skipanir hafa áhrif á hegðun mállíkans.
o Uppbygging góðrar skipunar.
• Tegundir skipana. (Farið er yfir skipanir frá einföldum til flóknari)
o Beinar skipanir.
o Aðgerðaskipanir.
o Rökskipanir.
o Samtalsskipanir.
o Hugmyndaskipanir.
o Fróðleiksskipanir.
o Samanburðarskipanir.
o Endurorðunarskipanir.
o Persónuleikaskipanir.
o Grafískar skipanir.
o Vídeóskipanir.
o Frásagnarskipanir.
o Tilraunaskipanir.
o Skapgerðarskipanir.
• Verkleg vinna
o Nemendur vinna með eigin eða raunhæf dæmi úr atvinnulífi.
o Kennari sýnir hvernig skipanir eru hannaðar til að styðja við markaðssetningu, efnisgerð og ákvarðanatöku.
o Áhersla á að móta hegðun mállíkans þannig að það vinni markvisst fyrir notandann eða fyrirtækið.
• Verkefni dagsins
o Nemendur búa til skipanir eftir forskrift sem sett er upp á töflu.
o Skipanir settar upp í PowerPoint.
o Farið yfir hvað er ætlast til af nemendum.
Dagur 2 – Spjallaðstoð (e. Agent)
• Inngangur að spjallaðstoð.
o Hvað er spjallaðstoð (Agent)
o Munurinn á venjulegri notkun og spjallaðstoð
• Sýnikennsla.
o Spjallaðstoð byggð á fyrir fram gerðum gögnum
§ Word
§ Excel
o Setja inn nafn, skýringar og logo
• Verkleg vinna – gögn og spjallboltar.
o Nemendur vinna með skýr og skiljanleg skjöl
o Raunhæf dæmi:
§ Uppsetning og rekstur kaffihúss
§ Heilsubúðin Líf (gögn)
§ Hugmyndaverkefni tengt Icelandair
• Verkefni dagsins
o Nota AI-skipanir til að búa til gögn í Word
o Lagfæra og fullvinna gögn í Word (nafnalistar o.fl.)
o Setja upp eina eða fleiri spjallaðstoðir (Agents)
o Gefa spjallaðstoð nýjar og sérsniðnar skipanir
• Verkefnamappa og samanburður
o Verkefnamappa í ChatGPT útskýrð
o Nemendur setja sömu gögn í verkefni og í spjallaðstoð
o Farið yfir muninn á verkefnum og spjallaðstoð
Frammistöðumat / Diplóma
Áætlað vinnuframlag
Námskeiðið fer fram í tvo daga, þrjár klukkustundir í senn. Heildarlengd er 6 klukkustundir, sem samsvarar 9 kennslustundum.