KPMG heldur á næstunni námskeið í reikningsskilum, endurskoðun, skattskilum og Excel. Námskeiðin eru opin öllum og henta mjög vel stjórnarmönnum, fjármálastjórum, starfsfólki í reikningshaldsdeildum, nefndarmönnum í endurskoðunarnefndum, sem og ytri og innri endurskoðendum.Námskeiðin veita löggiltum endurskoðendum endurmenntunareiningar í reikningsskilum, endurskoðun, skatta- og félagarétti og siðareglum hjá Félagi löggildra endurskoðenda (FLE).Námskeiðin verða haldin á tímabilinu 4. nóvember 2013 til 10. janúar 2014 í húsakynnum KPMG, Borgartúni 27, 105 Reykjavík, sem hér segir: Námskeið í reikningsskilum:
|
Námskeið í Excel:
Dags. |
Heiti |
Tími |
Verð |
14. nóv. |
Excel I |
9:00-12:00 |
15.900 kr. |
15. nóv. |
Excel II |
9:00-12:00 |
15.900 kr. |
|
Kennarar: sérfræðingar KPMG á Íslandi. Hámarksfjöldi: 29 þátttakendur á hvert námskeið. Lágmarksfjöldi: 10 þátttakendur á hvert námskeið (verði heildarfjöldi þátttakenda undir 10 áskilur KPMG sér rétt til að fella viðkomandi námskeið niður). Námskeiðsgögn fylgja, en þau eru í nokkrum tilvikum á ensku. Námskeiðsgjöldin eru undanþegin virðisaukaskatti.
Hægt er að sækja öll námskeiðin eða einstök námskeið.Skráning fer fram á heimasíðu KPMG. Nánari upplýsingar um skráningu og skipulag námskeiða veitir Björk Arnbjörnsdóttir í síma 894-4271 eða í tölvupósti á netfangi[email protected].
Upp
Námskeiðslýsingar
Mánudagur 4. nóvember 2013Framsetning reikningsskila samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS) Á námskeiðinu verður farið yfir ýmis atriði varðandi flokkun og framsetningu í rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu, efnahagsreikningi, eiginfjáryfirliti og skýringum samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastaðli IAS 1 Framsetning reikningsskila. Námskeiðið gefur 2 FLE einingar í flokknum reikningsskil og fjármál.
Upp
Þriðjudagur 5. nóvember 2013Verðmat í tengslum við gerð reikningsskila Á námskeiðinu verður farið yfir þær kröfur sem reikningsskilareglur (íslenskar og alþjóðlegar) gera um framkvæmd verðmats þegar meta skal eign eða skuld til gangvirðis. Er þá helst horft til þeirra viðmiða sem sett eru fram í alþjóðlegum reikningsskilastaðli IFRS 13 um mat á gangvirði en einnig verður horft til annarra staðla þar sem unnið er eftir öðrum reglum eins og t.d. við framkvæmd virðisrýrnunarprófa. Þátttakendur fá innsýn í hvaða aðferðarfræði þykir henta við mat á mismunandi eignum og skuldum og verður farið yfir raunhæf dæmi um mat á gangvirði. Helstu atriði sem farið verður yfir eru gangvirðismat á fastafjármunum, eignarhlutum í félögum, helstu tegundum afleiða, fjárfestingareignum, skuldum og skuldbindingum, sem og virðisrýrnunarpróf.Námskeiðið gefur 3 FLE einingar í flokknum reikningsskil og fjármál.
Upp
Miðvikudagur 13. nóvember 2013IFRS 101 – Grunnnámskeið í alþjóðlegum reikningsskilastöðlum Á námskeiðinu verður farið með einföldum hætti yfir helstu reglur alþjóðlegra reikningsskilastaðla. Námskeiðið hentar mjög vel fyrir þá sem vilja kynna sér eða rifja upp helstu reglur alþjóðlegra reikningsskilastaðla á einfaldan og hnitmiðaðan hátt, svo sem stjórnarmenn, framkvæmdastjóra og nefndarmenn í endurskoðunarnefndum.Námskeiðið gefur 3 FLE einingar í flokknum reikningsskil og fjármál.
Upp
Fimmtudagur 14. nóvember 2013Excel I Námskeiðið er fyrir þá sem notfæra sér Excel, en finnst þeim oft þurfa að fara langa leið að lausn vandamála og eyða miklum tíma í samantekt á gögnum. Miðað er við að fólk hafi grunnskilning á Excel og hafi notað forritið áður. Námskeiðið er einfaldara yfirferðar en Excel II námskeiðið. Farið er hægar yfir og meiri tíma eytt í útskýringar.Ásamt því að fara yfir fyrirspurnir frá nemendum verður farið yfir Excel vinnuumhverfið og hvernig hægt er að sérsníða það að nemendunum og þeirra vinnu. Farið verður yfir uppbyggingu formúla með föstum og afstæðum tilvísunum og ýtarlega yfir valdar formúlur t.d. if, sumif, left, right, index, match, vlookup ásamt fleiri formúlum með og án eftirfarandi skilyrða , &, * og ?.Að loknu námskeiði fá nemendur lausnarskjal þar sem hægt er að rifja upp allt sem fór fram í námskeiðinu ásamt fjölda annarra aðgerða sem ekki var farið yfir.Námskeiðið gefur ekki FLE einingar.
Upp
Föstudagur 15. nóvember 2013Excel II Námskeiðið er fyrir þá sem vinna mikið með Excel og langar að geta nýtt sér möguleika þess enn betur. Á námskeiðinu verður farið yfir þær reikniaðgerðir og formúlur sem hvað mest eru notaðar í almennri Excel-vinnslu. Hver reikniaðgerð er útskýrð og farið yfir hvernig hægt er að hámarka notkunargildi hverrar formúlu. Námskeiðið jafngildir hraðari yfirferð yfir Excel I námskeiðið, auk þess sem farið er yfir viðbótaratriði sem snúa að aðgerðum í Excel, svo sem hvernig á að fjarlægja endurtekningar í reitum, hvernig á að verja skrár með lykilorðum, búa til valmyndir, farið yfir valkvæða útlitshönnun (e. conditional formatting) og pivot töflur ásamt fjölmörgum öðrum aðgerðum, flýtilyklum og formúlum sem sparað geta mikinn tíma.Að loknu námskeiði fá nemendur lausnarskjal þar sem hægt er að rifja upp allt sem fór fram í námskeiðinu ásamt fjölda annarra aðgerða sem ekki var farið yfir.Námskeiðið gefur ekki FLE einingar.
Upp
Þriðjudagur 19. nóvember 2013Virðisaukaskattur – Frjáls og sérstök skráning atvinnuhúsnæðis – utanumhald á leiðréttingarskyldu virðisaukaskatts Á námskeiðinu verður farið yfir valkvæðu skráningarnar sem gilda um byggingu (sérstök skráning) og útleigu (frjáls skráning) atvinnuhúsnæðis í samræmi við reglugerð nr. 577/1989. Farið verður yfir helstu reglur sem gilda um skráningarnar, hvað fer oft úrskeiðis og hvernig á að leysa málin þegar þau eru komin í hnút. Jafnframt verður farið yfir utanumhald leiðréttingarskyldunnar sem myndast hjá aðilum sem byggja, endurbæta eða viðhalda atvinnuhúsnæði og nýta innskatt vegna þessa hvort sem það er í sérstakri skráningu, frjálsri skráningu eða í eigin virðisaukaskattsskyldri starfssemi. Sýnt verður líkan sem var sérstaklega hannað til að halda utanum stöðu leiðréttingarskyldunnar á einfaldan og þægilegan hátt. Námskeiðið gefur 2,5 FLE einingar í flokknum skatta- og félagaréttur.
Upp
Miðvikudagur 20. nóvember 2013Nýir staðlar og breytingar á stöðlum (IFRS Reminder) Á námskeiðinu verður farið í stuttu máli yfir nýja reikningsskilastaðla, breytingar á stöðlum, drög að nýjum stöðlum og fyrirhugaðar breytingar á stöðlum. Farið verður yfir eftirfarandi:
- Nýja staðla og breytingar á stöðlum sem tóku gildi innan Evrópusambandsins frá og með reikningsárinu 2013: IFRS 13Mat á gangvirði, IAS 1 – Framsetning liða í annarri heildarafkomu, IFRS 7 – Jöfnun fjáreigna og fjárskulda;
- Nýja staðla og breytingar á stöðlum sem munu taka gildi innan Evrópusambandsins frá og með reikningsárinu 2014: IFRS 10Samstæðureikningar, IFRS 11 Fyrirkomulag um samrekstur, IFRS 12 Upplýsingagjöf um hagsmuni í öðrum félögum, IAS 27Aðgreindir reikningar, IAS 28 Fjárfestingar í hlutdeildarfélögum og samrekstrarfélögum, IAS 32 Jöfnun fjáreigna og fjárskuldaog IFRIC 21 Álögur;
- Nýja staðla og breytingar á stöðlum sem munu taka gildi eftir reikningsárið 2014: IFRS 9 Fjármálagerningar;
- Drög að nýjum stöðlum/reglum um virðisrýrnun fjáreigna, áhættuvarnarreikningskil og leigusamninga;
- Stöðu annarra opinna verkefna hjá IASB og IFRS Interpretations Committee.
Námskeiðið gefur 3 FLE einingar í flokknum reikningsskil og fjármál.
Upp
Miðvikudagur 27. nóvember 2013Lestur og túlkun ársreikninga Grunnnámskeið þar sem farið verður yfir grunnhugtök í reikningshaldi, uppbyggingu ársreikninga og samhengi fjárhagsyfirlita, sjóðstreymi og skýringar, auk þess sem fjallað verður um kennitölur.Námskeiðið gefur 3 FLE einingar í flokknum reikningsskil og fjármál.
Upp
Föstudagur 29. nóvember 2013Tekjuskattsskuldbinding og samsköttun Á námskeiðinu verður farið yfir útreikning á tekjuskattsskuldbindingu (-eign) og færslu tekjuskatts í ársreikning. Einnig verður farið yfir helstu atriði sem þarf að hafa í huga við útreikning á tekjuskatti og við mat á eignfærslu skatteignar. Kynntar verða reglur um samsköttun ásamt útreikningum á áhrifum samsköttunar og færslur vegna þessa í bókhald. Einnig verður farið yfir gerð skattframtals m.t.t. útreikninga á sköttum og samsköttunar.Námskeiðið gefur 3 FLE einingar í flokknum skatta- og félagaréttur.
Upp
Þriðjudagur 3. desember 2013Innra eftirlit og sviksemi Á námskeiðinu verður farið yfir helstu áherslur við uppbyggingu innra eftirlits í viðskiptaferlum og tengdum viðskiptakerfum. Hverjar eru áhætturnar og hvaða atriði þarf að hafa í huga við skipulagningu og uppbyggingu á virku innra eftirliti. Rætt verður um sviksemisáhættu bæði er varðar sviksemi í reikningsskilum og misnotkun eigna og hvernig hægt er að sporna við. Námskeiðið hentar vel fyrir fjármálastjóra, stjórnendur og aðra sem koma að uppbyggingu á innra eftirliti.Námskeiðið gefur 2 FLE einingar í flokknum endurskoðun og 1 FLE einingu í siðareglum og faglegum gildum.
Upp
Miðvikudagur 4. desember 2013Ársreikningalög Á námskeiðinu verður farið yfir helstu reglur laga nr. 3/2006 um ársreikninga. Námskeiðið hentar mjög vel fyrir þá sem vilja rifja upp helstu reglur ársreikningalaga á einfaldan og hnitmiðaðan hátt.Námskeiðið gefur 3 FLE einingar í flokknum reikningsskil og fjármál.
Upp
Þriðjudagur 10. desember 2013 Endurskoðunarferillinn Á námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði alþjóðlegra endurskoðunarstaðla (ISA) og þau tengd við feril endurskoðunar. Námskeiðið hentar mjög vel fyrir þá sem vilja kynna sér og/eða rifja upp meginatriði alþjóðlegu endurskoðunarstaðlanna á einfaldan og hnitmiðaðan hátt, svo sem fjármálastjóra, stjórnarmenn og nefndarmenn í endurskoðunarnefndum.Námskeiðið gefur 4 FLE einingar í flokknum endurskoðun.
Upp
Miðvikudagur 11. desember 2013Skil á bókhaldi til endurskoðanda Á námskeiðinu er fjallað um hvernig best er að skila bókhaldi til endurskoðanda. Hentar helst þeim sem eru með óendurskoðaða ársreikninga en einnig þeim sem fá endurskoðunaráritun. Farið verður yfir hvaða gögnum þarf að skila til endurskoðandans, hvaða liðir ættu að vera afstemmdir og hvernig er hægt að lágmarka kostnað við gerð ársreiknings og skattframtals.Námskeiðið gefur 2 FLE einingar í flokknum reikningsskil og fjármál.
Upp
Mánudagur 16. desember og þriðjudagur 17. desember 2013IFRS 102 – Ítarlegt námskeið um alþjóðlega reikningsskilastaðla (6 klst. námskeið sem kennt er í tveimur hlutum) Á námskeiðinu verður farið ítarlega yfir reglur um mat og færslu birgða, rekstrarfjármuna, leigusamninga og fjármálagerninga, svo sem hlutabréfa og skuldabréfa o.fl., með áherslu á sýnidæmi og útreikninga. Umfjöllun um viðfangsefnin sem tekin verða fyrir á þessu námskeiði verður ítarlegri en á námskeiðinu IFRS 101 – Grunnnámskeið í alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.Námskeiðið gefur 6 FLE einingar í flokknum reikningsskil og fjármál.
Upp
Föstudagur 10. janúar 2014Bókhald og launavinnsla Á námskeiðinu verður farið yfir þau atriði sem þarf að hafa í huga þegar byrjað er í rekstri:
- Skráning á virðisaukaskattsskrá og meðferð og skil á virðisaukaskatti.
- Hvað er VSK-skylt og hvað má innskatta í rekstri.
- Hvað eru bókhaldsgögn og hvernig haldið er utan um gögnin.
- Val á bókhaldskerfi og hvað þarf að hafa í huga.
- Fjallað verður um skyldur launagreiðenda og hvernig við reiknum út laun.
- Útskýrður munurinn á reiknuðu endurgjaldi og launum.
Hentar þeim sem eru að byrja með rekstur.Námskeiðið gefur 3 FLE einingar í flokknum reikningsskil og fjármál.
Upp
|