Dagskrá fyrir námskeiðið 6.nóvember (aðalfundardaginn) er komin.
Skráning hefst um leið og vefsíða félagsins kemst í lag.
Dagskrá :
12:30 – 13:00 Uppsetning ferilskrár – Helga Jónsdóttir, starfsmaður Capacent kemur með nytsama punkta varðandi gerð ferilskrár ! – að hverju skal huga …
13:00 – 14:10 Word – „hvernig get ég nýtt mér Office pakkann betur“ –
búið til limmiða, prentað út hausa á bréfum o.fl.
Sigurður Jónsson hjá Tölvu-og verkfræðiþjónustunni kennir okkur að nýta betur Word.
14:10 – 14:40 „Hvernig á að lesa yfirlit frá tollstjóra og sýslumönnum „
starfsmaður Fjársýslu ríkisins fer yfir málin.
14:40 – 15:00 Hlé – kaffi og meðlæti !
15:00 – 16:30 "Draugar og afturgöngur" –
virðisaukaskattskvaðir, algeng mistök og helstu álitaefni –
fyrirspurnir úr sal! Soffía Eydís Björgvinsdóttir, vsk sérfræðingur KPMG miðlar af reynslu sinni.
16:30 – 17:00 Hlé þar til aðalfundur hefst ! – tími í smá hópefli