Óvissuferð Félags viðurkenndra bókara
Kæru félagar !
Ferðinni hefur verið frestað þar sem þátttaka var ekki nægileg
Við í skemmtinefnd FVB erum búnar að skipuleggja þessa líka æðislegu óvissuferð sem við ætlum að fara í miðvikudaginn 8. mai ( daginn fyrir uppstigningardag )
Lagt verður af stað frá Skrifstofu FVB Langholtsvegi 111 Kl. 16:00 og haldið austur á bóginn, hægt verður að koma við í Hveragerði og Selfoos sækja fólk þangað ef vilji er fyrir því. Ferðin mun standa í 5-6 klukkustundir. Klæðnaður þarf bara vera hefðbundinn, engar jöklaferðir eða slíkt. Endilega að taka með létt drykkjarnesti að eigin vali. Boðið verður upp á veitingar í föstu formi.
Verð er kr. 4.000 á félagsmann og kr. 6.000 á aðra utan félags.
Þeir sem vilja að rútan stoppi í Hveragerði eða Selfoss vinsamlegast sendið póst á [email protected]
Hlökkum til að sjá ykkur með gleðina að leiðarljósi.
Skemmtilega Skemmtinefndin