Search
Close this search box.

Persónuafsláttur hækkar um 2,0%, tekjumiðunarmörk um 8,7% og tryggingagjald lækkar um 0,14 prósentustig

Persónuafsláttur hækkar um 2,0%, tekjumiðunarmörk um 8,7% og tryggingagjald lækkar um 0,14 prósentustig22.12.2015

Samkvæmt gildandi lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal í upphafi árs hækka persónuafslátt hvers einstaklings í samræmi við hækkun vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði.

Á grundvelli þess verður persónuafsláttur 623.042 kr. fyrir árið 2016, eða 51.920 krónur á mánuði. Persónuafsláttur einstaklinga hækkar um  12.217 kr. milli áranna 2015 og 2016, eða um 1.018 kr. á mánuði og nemur hækkunin 2,0%.

Skattleysismörk tekjuskatts og útsvars verða samkvæmt því 145.659 kr. á mánuði að teknu tilliti til 4% lögbundinnar iðgjaldsgreiðslu launþega í lífeyrissjóð samanborið við 142.153 kr. á mánuði 2015. Hækkunin milli ára nemur 2,5%.

Tekjuskattur, útsvar og staðgreiðsla

Á haustþingi voru lögfestar breytingar á tekjuskattskerfi einstaklinga þar sem skattþrepum er fækkað úr þremur í tvö í tveimur áföngum. Fyrri áfangi kemur til framkvæmda á árinu 2016. Skatthlutfall tekjuskatts í fyrsta þrepi lækkar um 0,18 prósentustig, úr 22,86% í 22,68%, skatthlutfallið í öðru þrepi lækkar um 1,4 prósentustig, úr 25,3% í 23,9% og þriðja þrepið helst óbreytt í 31,8%. Jafnframt lækka þrepamörkin í þriðja þrepi í 770.000 kr. á mánuði. Sú fjárhæð tekur breytingum í samræmi við hækkun launavísitölu.

Mörk milli skattþrepa, taka breytingum í upphafi hvers árs í réttu hlutfalli við hækkun launavísitölu á undangengnu tólf mánaða tímabili. Launavísitala nóvembermánaðar liggur nú fyrir og er hækkun hennar á tólf mánaða tímabili 8,7%.

Mánaðarleg tekjumiðunarmörk þrepa verða samkvæmt því 336.035  kr. í fyrsta þrepi, 500.955 kr. í öðru þrepi og 836.990 kr. í þriðja þrepi fyrir tekjur ársins 2016.

Tekjuskattur er lagður á í þremur þrepum í síðasta sinn á árinu 2016. Þrepin skiptast þannig að af fyrstu 4.032.420 kr. árstekjum einstaklings (336.035 kr. á mánuði) er reiknaður 22,68% skattur. Af næstu 6.011.460  kr. (500.955 kr. á mánuði) er reiknaður 23,9% skattur og síðan í þriðja þrepi 31,80% skattur af árstekjum umfram  10.043.880 kr. (836.990 kr. á mánuði).

Við þessi hlutföll bætist útsvar sem er mishátt eftir sveitarfélögum. Hámarksútsvar 14,52% er óbreytt á grundvelli samkomulags ríkis og sveitarfélaga vegna málefna fatlaðs fólks en sú tímabundna breyting sem gilt hafði um 0,04 prósentustiga tilfærslu milli tekjuskatts og útsvars var lögfest til frambúðar á yfirstandandi haustþingi.  Meðalútsvar á árinu 2016 verður samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarfélaga 14,45% og hækkar um 0,01 prósentustig frá árinu 2015. Í staðgreiðslu dregur launagreiðandi frá skatt þar sem miðað er við meðalútsvarshlutfall.

Sveitarfélög geta samkvæmt lögum um tekjustofna sveitarfélaga ákveðið útsvar á bilinu 12,44% til 14,52%. Af 74 sveitarfélögum leggja 57 á hámarksútsvar. Eitt þeirra nýtir að auki sérstakt álag og verður útsvarshlutfall þess 15,05%. Þrjú sveitarfélög leggja á lágmarksútsvar. Eitt sveitarfélag hækkaði útsvarsprósentuna og eitt sveitarfélag lækkaði hana. Útsvarshlutfall einstakra sveitarfélaga kemur fram í fylgiskjali.

Staðgreiðsluhlutfall ársins 2016 í heild, þ.e. bæði vegna tekjuskatts og útsvars verður þríþætt eftir fjárhæð tekna, þ.e. 37,13% á tekjur í fyrsta þrepi, 38,35% á tekjur í öðru þrepi og 46,25% á tekjur í þriðja þrepi.

Tryggingagjald

Tryggingagjald er sérstakt gjald sem launagreiðendum ber að greiða af heildarlaunum launamanna sinna á tekjuári og eftir atvikum af eigin reiknuðu endurgjaldi. Tryggingagjald  er innheimt í staðgreiðslu og skiptist í almennt tryggingagjald og atvinnutryggingagjald.

Tryggingagjald telst til svokallaðra launatengdra gjalda, en það eru þau gjöld sem launagreiðendur, þ.m.t. sjálfstætt starfandi menn, greiða vegna launakostnaðar við atvinnurekstur. Önnur launatengd gjöld í staðgreiðslu eru markaðsgjald og gjald í Ábyrgðarsjóð launa, en þau eru innheimt í staðgreiðslu samhliða innheimtu tryggingagjalds.

Á staðgreiðsluárinu 2016 er hlutfall tryggingagjalds að meðtöldu markaðsgjaldi og gjaldi í Ábyrgðarsjóð launa 7,35% og lækkar því um 0,14 prósentustig milli ára. Skipting þess er sem hér segir:

            Almennt tryggingagjald                                              5,90%

            Atvinnutryggingagjald                                                1,35%

            Gjald í Ábyrgðarsjóð launa vegna gjaldþrota        0,05%

            Markaðsgjald                                                               0,05%

            Samtals til staðgreiðslu                                           7,35%

Sérstök trygging (0,65%) bætist við vegna launa sjómanna á fiskiskipum. Tryggingagjaldi skal skila mánaðarlega til innheimtumanna ríkissjóðs.

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur