Nr. 776 12. október 2010
REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 636/2009 (um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002).
1. gr.
Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 74/2009, frá 29. maí 2009, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samn-ingsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 636/2009 frá 22. júlí 2009 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar túlkun alþjóðlegu túlkunarnefndarinnar um reikningsskil (IFRIC-túlkun) nr. 15.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 636/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 56/2010, 7. október 2010, bls. 74.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 158/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnar-tíðindi EB, nr. 12/2009, 11. mars 2009, bls. 62.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðu-reikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla og öðlast þegar gildi.
Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 12. október 2010.
Árni Páll Árnason.
Kjartan Gunnarsson.
__________
B-deild – Útgáfud.: 14. október 2010