REGLUGERÐ um breytingu á reglugerð um vörugjald af ökutækjum. Leigubílar og kennslubifreiðar. Reiknað endurgjald bílstjórans. Heimild tollstjóra til að lækka endurgjaldið frá viðmiðunarreglum fjmrn.
Meðfylgjandi reglugerð var birt í Stjórnartíðndum í dag.
Eftirfarandi er fréttatilkynning ráðuneytisins um efni hennar:
"Reglugerð um breytingu á skilyrðum rétthafa til lækkunar á vörugjaldi af leigubifreiðum til fólksflutninga og bifreiðum ætlaðar til ökukennslu
24.4.2009
Fréttatilkynning nr. 26/2009
Fjármálaráðherra hefur í dag gefið út reglugerð um breytingu á skilyrðum rétthafa til lækkunar á vörugjaldi af leigubifreiðum til fólksflutninga og bifreiðum ætlaðar til ökukennslu. Í 15. grein reglugerðarinnar er kveðið á um að vörugjald af slíkum bifreiðum skuli lækka hafi rétthafi í tekjur að lágmarki 70% af reiknuðu endurgjaldi í staðgreiðslu, skv. viðmiðunarreglum sem fjármálaráðherra gefur út. Uppfylli rétthafi ekki sett skilyrði ber honum að endurgreiða mismuninn á fjárhæð vörugjalds sem greitt var og þeirri fjárhæð sem borið hefði að greiða ef ekki hefði komið til lækkunar. Hingað til hefur ekki verið heimild til að fallast á lægra reiknað endurgjald vegna sérstakra aðstæðna rétthafa sem í vissum tilvikum hefur komið hart niður á rétthöfum, t.d. vegna veikinda eða ef bifreið ónýtist
Með þeirri reglugerðarbreytingu sem gefin var út í dag er tollstjóra veitt heimild til þess að fallast á lægra endurgjald en viðmiðunarreglur fjármálaráðherra kveða á um enda liggi fyrir viðhlítandi gögn og rökstuðningur rétthafa sem réttlætt getur slíka ákvörðun.
Fjármálaráðuneytið, 26. apríl 2009 "