Jónsbók ehf. bókhaldsþjónusta Súðarvogi 7, óskar eftir að ráða ritara til starfa í allt að hálft stöðugildi. Æskilegur vinnutími er fyrir hádegi.
Viðkomandi þarf að vera talnaglöggur, hafa góða almenna tölvuþekkingu og hæfni í mannlegum samskiptum. Reynsla og þekking á excel er nauðsynleg og einhver reynsla og þekking á bókhaldi er æskileg. Viðkomandi þarf að hafa bifreið til umráða.
Helstu verkefni eru símsvörun, móttaka viðskiptavina, móttaka og afhending gagna, skjalavarsla, skýrslu- og reikningagerð, frágangur skjala og sendiferðir auk alhliða skrifstofustarfa og aðstoðar við bókhald, skattskil og uppgjör.
Leitað er að einstaklingi sem hefur hæfileika til að vinna sjálfstætt og gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu. Starfið er laust nú þegar.
Getum líka bætt við okkur vönum og vandvirkum, viðurkenndum bókurum í færslu bókhalds og uppgjör.
Upplýsingar veitir Jón Helgi í síma 530-8777 og í gegnum tölvupóstfangið [email protected]
Umsóknir óskast sendar í tölvupósti með upplýsingum um fyrri störf, nám og reynslu. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum verður svarað.
www.jonsbok.is