Nr. 1056/2008 |
31. október 2008
|
|
AUGLÝSING |
||
ríkisskattstjóra um framlengingu á úrskurðarfresti skattstjóra.
|
||
Frestur skattstjóra til að úrskurða kærur vegna álagningar opinberra gjalda á menn árið 2008, sbr. auglýsingu í Lögbirtingablaðinu, dags. 31. júlí 2008, er hér með framlengdur til 10. febrúar 2009. Ákvörðun þessi, sem byggir á heimild í 120. gr. laga nr. 90/2003, tekur þegar gildi. Reykjavík, 31. október 2008. Ingvar J. Rögnvaldsson vararíkisskattstjóri. Guðrún Jenný Jónsdóttir.
|
||
|
B-deild – Útgáfud.: 20. nóvember 2008
|