Meðfylgjandi auglýsing frá ríkisskattstjóra um bústofn til eignar, í skattframtali 2009 er dagsett þann 31.des 2008 og fær tölusetningu miðaða við það — en birtist í B- deild Stjórnartíðinda á mánudaginn var, þann 26.janúar 2009.
Fjárhæðir hækka lítillega milli ára —- t.d. kýr úr 95 þkr í 99 þkr — en athygli er á því vakin að nú liggur fyrir í fyrsta sinn skattmat á geitum (kr 3400 ).