Ágæti viðtakandi!
Mánudaginn 30. júlí kl. 16:00 getur þú nálgast álagningarseðil þinn á þjónustuvefnum á skattur.is með kennitölu og veflykli. Hafir þú glatað veflykli þínum má óska eftir nýjum á skattur.is og fá hann sendan í heimabanka eða póstlagðan á lögheimili þitt. Seðlar verða bornir út þriðjudaginn 31. júlí tilþeirra sem ekki afþökkuðu álagningarseðla á pappír. Með örfáum undantekningum verða inneignir lagðar inn á bankareikninga miðvikudaginn 1. ágúst eða greiddar út með ávísunum. Sé inneign tilgreind á álagningarseðli, en ekki getið um útborgun hennar, þá veitir innheimtumaðurinn í þínu umdæmi nánari upplýsingar. Upplýsingar um sjálfa álagninguna veitir skattstjórinn í þínu umdæmi, en heimilisföng og símanúmer skattstjóra og innheimtumanns er að finna á álagningarseðlinum. Getir þú ekki nálgast álagningarseðilinn á vefnum, þá er veitt aðstoð vegna tæknilegra vandamála í síma 563-1144 á skrifstofutíma. Ríkisskattstjóri þakkar þátt þinn í að efla rafræna stjórnsýslu og stuðla að hagkvæmni. Athugið að þetta er "einstefnupóstur" og því ekki hægt að svara honum. Ef þörf er á frekari upplýsingum skal hafa samband við skattstjóra eða innheimtumann.
Bestu kveðjur, ríkisskattstjóri