Meðfylgjandi er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur í máli ákæruvaldsins vegna skattamála Jóns Ólafssonar ofl.
en þeir voru ákærðir vegna meiriháttar skattalagabrota í störfum sínum fyrir Norðurljós og tengd fyrirtæki.
Héraðsdómur vísar málinu frá á þeim forsendum að ákærðum hafi þegar verið gerð refsing fyrir brot á skattalögum.
Þótti það stangast á við ákvæði laga um meðferð opinberra mála sem og Mannréttindasáttmála Evrópu að ákvarða refsingu í málinu nú..
Segir svo í dómnum:
" Úrlausnarefnið hér er hvort ákvæði 2. mgr. 138. gr. laga nr. 19/1991 girði fyrir að heimilt sé að ákvarða ákærðu refsingu fyrir brot sem viðkomandi lögaðilum hafa þegar verið ákvörðuð refsikennd viðurlög fyrir. Í ljósi niðurstöðu dómsins hér að framan varðandi persónuleg skattskil ákærðu er slegið föstu að álag á vantalda skattstofna verði talið refsing í skilningi 1. mgr. 4. gr. 7. samningsviðauka við mannréttindasáttmála Evrópu. Verður það talið eiga við um álag hvort sem er á grundvelli laga nr. 90/2003, nr. 45/1987 eða nr. 50/1988. Skattyfirvöld hafa þegar ákvarðað lög¬aðilunum refsingu vegna háttsemi ákærðu á fyrri stigum sem fyrirsvarsmanna félag¬anna. Hefur krafa þessi því verið dæmd að efni til á fyrri stigum. Standa ákvæði 2. mgr. 138. gr. laga nr. 19/1991 því í vegi að unnt sé að dæma sömu kröfu að efni til. Verður ákæru á hendur ákærðu Jóni Ólafssyni, Hreggvið Jónssyni og Ragnari Birgissyni vegna skattskila lögaðilanna Norðurljósa, samskiptafélags hf., Skífunnar hf. og Íslenska útvarpsfélagsins hf., samkvæmt IV. til VI. kafla ákæru einnig vísað frá dómi. "
Sjá dóm