"Í Lögbirtingablaðinu í dag er birt auglýsing um
endurákvörðun vaxtabóta samkvæmt lögum nr. 135/2006.
Fjársýslan hefur skuldajafnað á móti ákvarðaðri greiðslu skv. reglugerð nr.
990/2001 með síðari breytingum þar sem það á við. Útborgun mismunarins fer fram
í dag. Greitt er inn á bankareikning hjá þeim sem gefið hafa upp reikningsnúmer
en aðrir fá ávísun senda.
Um
15.000 einstaklingar fengu hækkun vaxtabóta við endurreikninginn, þar af liðlega
6.000 sem engar höfðu fyrir. Allir sem fengu hækkun fá senda tilkynningu þar um,
undirritaða af viðkomandi skattstjóra og í sama umslagi upplýsingar um
skuldajöfnun Fjársýslu ríkisins, þar sem það á við. Umslagið, sem merkt er
Fjársýslu, verður borið út í dag."
ÆÍ 12 12 06
|