Search
Close this search box.

RSK – fellt verði niður tímabundið niður álag vegna skila á staðgreiðslu

Fjármálaráðuneytið hefur í dag beint þeim tilmælum til skattstjóra og tollstjórans í Reykjavík að fellt verði niður tímabundið niður álag vegna þeirra skila á staðgreiðslu sem á eindaga eru í dag og gildi sú niðurfelling í eina viku eða til 22. október nk.

"Tímabundin niðurfelling álags vegna skila á staðgreiðslu

15.10.2008

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 18/2008

15.10.2008

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 18/2008

Samkvæmt 20. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, er 15. október eindagi staðgreiðslu launamanna, útsvars launamanna, álagðra skatta launamanna og tryggingagjalds launagreiðenda og skila á skilagrein vegna september mánaðar.

Í 3. mgr. 20. gr. laganna kemur fram að hafi launagreiðandi eigi staðið skil á staðgreiðslu á eindaga skuli hann sæta álagi skv. 28. gr. laganna. Í 6. mgr. 28. gr. laganna kemur fram að fella megi niður álag ef launagreiðandi færir gildar ástæður sér til afsökunar og metur skattstjóri það í hverju einstöku tilviki hvað telja skuli gildar ástæður í þessu sambandi.

Vegna þeirra truflana sem orðið hafa á bankastarfsemi hér á landi og áhrifa þess á atvinnulífið telur ráðuneytið að gildar ástæður séu til að beita þeirri heimild sem fram kemur í 6. mgr. 28. gr. laga nr. 45/1987, til tímabundinnar niðurfellingar álags vegna skila á staðgreiðslu fyrir september.

Hefur ráðuneytið í dag beint þeim tilmælum til skattstjóra og tollstjórans í Reykjavík að fellt verði tímabundið niður álag vegna þeirra skila á staðgreiðslu sem á eindaga eru í dag og gildi sú niðurfelling í eina viku eða til 22. október nk.

Reykjavík 15. október 2008"

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur