Fréttir og tilkynningar (af rsk.is):
"29. desember Staðgreiðsluhlutfall ársins 2009 mun liggja fyrir 31.12.2008."
Þessu til viðbótar má taka fram að persónuafslátturinn fer í 42.205 krónur á mánuði samkvæmt frétt á Vísir.is. ( Er nú 34.034 krónur).
Eftirfandi er birt hér með verulegum fyrirvara:
"Vísir, 29. des. "2008 12:07
Persónuafsláttur hækkar verulega
Persónuafsláttur hækkar nú um áramótin um rúmlega átta þúsund krónur á mánuði og fer í liðlega 42 þúsund krónur.
Ekki liggur enn fyrir hver skattprósentan verður í staðgreiðslukerfinu því fjármálaráðuneytinu hafði í morgun ekki borist tilkynningar frá öllum sveitarfélögum um útsvarsprósentuna.
Alþingi ákvað hins vegar að hækka tekjuskattsprósentuna um 1,25 prósentustig og heimilaði sveitarfélögum að hækka hámarksútsvar um 0.25 prósentustig.
Stærsta sveitarfélag landsins, Reykjavík, er meðal þeirra sem ekki nýta sér þessa heimild og því verður hækkun skattprósentunnar því eittthvað lægri en búist var við.
Skattprósentan í staðgreiðslunni er á þessu ári 35,72 prósent og líklegt að hún verði í kringum 37,1 prósent eftir áramót, og hækki þannig um nærri 1,4 prósentustig. Mikil hækkun persónuafsláttar mun hins vegar hjá þorra launþega vega upp þessa skattahækkun því hann mun, samkvæmt auglýsingu fjármálaráðuneytsins, sem birt verður í dag, hækka um 24 prósent. "
VÍSIR.IS