Meðfylgjandi er frumvarp til laga um breyting á lögum um iðnaðarmálagjald.
Með þessu frumvarpi er lagt til að innleiddur verði nýr staðall um atvinnugreinaflokkun fyrir álagningu iðnaðarmálagjalds. Þannig komi ÍSAT2008 í stað ÍSAT1995. Engar efnisbreytingar verða á gjaldskyldugrunni að öðru leyti.
Gert er ráð fyrir að breytingin öðlist þegar gildi við birtingu laganna og komi til framkvæmda við álagningu opinberra gjalda árið 2009 vegna rekstrar á árinu 2008.