Frumvarp til laga um breytingá lögum um tekjuskatt. Hækkun vaxtabóta um 25 % 2009, vegna vaxtagreiðslna ársins 2008.
Frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum fylgir hér með. Það hefur að geyma tillögur að nýju ákvæði til bráðabirgða í tekjuskattslögum. Samkvæmt því eru viðmiðunarfjárhæðir til útreiknings vaxtabóta ársins 2009 vegna greiðslna vaxta á árinu 2008 hækka verulega. Einnig hækka bæturnar sjálfar. Samkvæmt þessu breytast ekki grunnfjárhæðir sem slíkar en hinar hærri tölur eru til viðmiðunar nú í sumar.
Frumvarpið gerir ráð fyrir gildistöku þegar við birtingu og í athugasemdum kemur fram berum orðum að það gildi við næstu álagningu og útreikning vaxtabóta.