Meðfylgjandi er stjórnarfrumvarp til laga um endurskoðendur. Um er að ræða heildarlög með ýmsum nýmælum..
Frumvarpið er í samræmi við félagatilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2006/43/EB frá 17. maí 2006 um lögboðna endurskoðun ársreikninga og samstæðureikninga.
Er tilgangur frumvarpsins er að tryggja með betri hætti en áður að fjárfestar og aðrir hagsmunaaðilar geti reitt sig á störf endurskoðenda með því að gerðar verði auknar kröfur til endurskoðenda og eftirlits með störfum þeirra.
Lagt er til að tekin verði upp skylduaðild endurskoðenda að Félagi löggiltra endurskoðenda og að félagið sjái um gæðaeftirlit með störfum þeirra og setji siðareglur með staðfestingu ráðherra.
Frumvarpið gerir ráð fyrir stofnun endurskoðunarráðs sem hafi almennt eftirlit með störfum endurskoðenda. Skal það skipað af fjármálaráðherra.
Endurskoðendaráð verði sjálfstætt í störfum sínum og úrskurðir þess sæti ekki stjórnsýslukærum. Endurskoðendaráð hefurstöðu stjórnsýslunefndar og fer með opinbert eftirlit og stjórnsýsluvald. Endurskoðendaráð á að hafa eftirlit með því að endurskoðendur og endurskoðunarfyrirtæki ræki störf sín í samræmi við ákvæði laganna og aðrar reglur sem taka til starfa endurskoðenda.
Samkvæmt frumvarpinu skal sérhver endurskoðandi greiða í ríkissjóð árlegt gjald að fjárhæð 50.000 kr. til að standa straum af kostnaði við störf endurskoðendaráðs. – Sjá frumvarpið í heild sinni