Frumvarp til laga um skattlagningu kolvetnisvinnslu. Með frumvarpinu er lögð til sérstök skattlagning á framleiðslu á kolefni.
Þeir aðilar sem stunda kolvetnisvinnslu eða taka með beinum hætti þátt í öflun og dreifingu kolvetnis verða skattlagðir sérstaklega annaðhvort í formi vinnslugjalds eða kolvetnisskatts.
Frumvarpið miðast við að aðilar sem eru skattskyldir samkvæmt þessu greiði eftir sem áður skatta og önnur gjöld hér á landi.
Skylda til að greiða skatta og gjöld mun hvíla á aðilum sem fengið hafa leyfi til leitar, rannsókna eða vinnslu kolvetnis á tilgreindu svæði.
Og einnig á öðrum aðilum sem taka með beinum eða óbeinum hætti þátt í vinnslu og dreifingu kolvetnisafurða.
Skattskyldir eru þannig lögaðilar, sjálfstætt starfandi menn og launþegar sem afla tekna við slíka starfsemi .
Gert er ráð fyrir að skattstjórinn í Reykjavík annist álagningu skattanna samkvæmt lögunum og annarra opinberra gjalda sem lögð eru á viðkomandi aðila nema um sé að ræða einstaklinga sem heimilisfastir eru í öðrum skattumdæmum.
Tekið er fram að allir aðilar sem skattskyldir eru samkvæmt lögunum skulu halda eftir afdráttarskatti ef viðtakandi greiðslunnar er ekki ótakmarkað skattskyldur hér á landi. Afdráttarskyldan tekur til allra launamanna og annarra aðila sem selja þjónustu til skattskyldra rekstraraðila. samkvæmt frumvarpinu.
Ítarleg ákvæði eru um gjaldskyldu, gjaldstofn og gjaldtöku í frumvarpinu.
Fyrirhugað er að fyrstu leyfin til rannsókna kolvetnis verði boðin út 15. janúar 2009.
Ef kolvetni finnst mun sérstakt viðmiðunarverð verða ákveðið mánaðarlega af þriggja manna nefnd sem fjármálaráðherra skipar.