Search
Close this search box.

RSK – Frumvarp (vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.)

Meðfylgjandi er frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum,eldsneyti o.fl., og lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt,með síðari breytingum.

Sjá frumvarp

Með frumvarpinu er lagt til að endurgreiddur verði hluti virðisaukaskatts og vörugjalds af notuðum vélknúnum ökutækjum sem eru seld eða flutt úr landi fram til 1. apríl 2009.
Er markmið frv að greiða fyrir sölu notaðra bifreiða úr landi og rjúfa  kyrrstöðu  í sölu á nýjum bifreiðum.
Samkvæmt frumvarpinu er endursala á bifreið til útlanda ekki skilyrði fyrir endurgreiðslu heldur einungis flutningur úr landi.
Frumvarpið gerir ráð fyrir því að virðisaukaskattur og vörugjöld sem greidd voru af bifreiðum við tollafgreiðslu þeirra myndi endurgreiðslugrunn.
Endurgreiðsluhlutfallið lækkar með aldri bílsins frá tollafgreiðsludegi.  Lækkun er  2% fyrir hvern byrjaðan mánuð fyrstu 12 mánuðina og 1,5% á mánuði eftir það. Hefur þannig fyrning  náðst að fullu rúmum 5 árum eftir tollafgreiðslu.
Endurgreiðsla virðisaukaskatts nær ekki til þeirra ökutækja sem hafa notið innskatts . Í slíkum tilfellum yrðu þó vörugjöld endurgreidd .

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur