Meðfylgjandi eru lög nr. 130 frá 17.nóvember sl um breyting á tollalögum, nr. 88/2005, með síðari breytingum. Um er að ræða bráðabirgðaákvæði við gildandi tollalög. Með þessum lögum er sett inn heimild fyrir því að aðilar sem nú njóta greiðslufrests á aðflutningsgjöldum geti óskað eftir breytingu á fyrirkomulagi gjalddaga aðflutningsgjalda vegna uppgjörstímabilsins september–október. Eru lögin samþykkt í ljósi þeirra þrenginga sem fyrirtæki standa frammi fyrir sakir efnahagsástandsins.
Samkvæmt skilgreiningu tollalaga eru aðflutningsgjöld og útflutningsgjöld skilgreind sem tollur og aðrir skattar og gjöld sem greiða ber við tollmeðferð vöru við inn- eða útflutning.
Rétt er að það komi fram að það er sjónarmið skattyfirvalda (sbr. t.d. G-ákv. 918/1999 frá RSK) að ekki sé gert ráð fyrir því í lögum nr. 50/1988 um virðisaukaskatt að gjaldandi fái virðisaukaskatt af innflutningi endurgreiddan sem innskatt áður en hann greiðir tollkrít.
Telja verður að sömu reglur og um er fjallað í framangreindu bréfi eigi að gilda um greiðslufrestun af þeim toga sem nýju lögin setja
Innflutningsaðilar fá greiðslufrest í tolli, þ.m.t. á vsk, en hins vegar mega þeir ekki færa alla heildarsummu virðisaukaskatts til innskatts á vsk-skýrslu þann 5. des. nk. heldur eingöngu þann vsk sem að þeir hafa greitt, þ.e. 1/3 hluta vsk ef að þeir hafa nýtt sér heimildina.