Lög um breyting á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, og lögum um tekjuskatt. —— Útborgun innstæðu séreignarsparnaðar 01.03.09 til 01.10.10. Iðgjaldsfrádráttur hækkar í 6% f o m
Meðfylgjandi eru óbirt og enn ónúmeruð lög um breyting á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, lögum nr. 45/1987,um staðgreiðslu opinberra gjalda og lögum nr. 90/2003,um tekjuskatt, með síðari breytingum.
Þetta eru helstu atriði laganna:
1.
Samkvæmt lögunum er lífeyrissjóði og öðrum vörsluaðila séreignarsparnaðar heimilt, á tímabilinu 1. mars 2009 til 1. október 2010, að greiða út séreignarsparnað sem myndast hefur af viðbótariðgjaldi til lífeyrissjóðs oþh.
2.
Heimilt er á þessu tímabili . að hefja útborgun innstæðu séreignarsparnaðar ásamt vöxtum, að fjárhæð sem við gildistöku laganna nemur samanlagt
allt að 1.000.000 kr. Er þetta óháð því hvort samanlagður séreignarsparnaður er í vörslu hjá fleiri en einum vörsluaðila.
3.
Fjárhæðin skal greiðast út með jöfnum mánaðarlegum greiðslum, að frádreginni staðgreiðslu samkvæmt lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, í níu mánuði frá því að beiðni um útgreiðslu er lögð fram .
4.
Sótt er um til vörsluaðilans, þeas lífeyrissjóðs oþh..
5.
Skuldheimtumönnum er óheimilt að krefjast þess að skuldarar taki út séreignarsparnað sinn..
6. er óheimilt að krefjast þess að skuldarar taki út séreignarsparnað sinn..
Ríkisskattstjóri hefur eftirlit með útgreiðslum séreignarsparnaðar samkvæmt lögunum.
7.
Setja má reglugerð m.a um heimild vörsluaðila til innheimtu sérstaks gjalds vegna umsýslu við útgreiðsluna.
8.
Útgreiðsla séreignarsparnaðar hefur ekki áhrif á bætur samkvæmt lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð. Þá hefur útgreiðslan ekki áhrif á greiðslu
húsaleigubóta, greiðslu barnabóta eða vaxtabóta og atvinnuleysisbóta.
9.
Gjalddagi greiðslu vegna skila á staðgreiðslu af þessari útborgun skal vera tveimur mánuðum síðar en almennt gerist.
10.
Heimilt er að draga frá tekjuskattsstofni allt að 6% frá af iðgjaldsstofni vegna iðgjalda sem greidd eru til lífeyrissjóða á tímabilinu 1. mars 2009 til 1. október 2010.
11.
Lögin öðlast þegar gildi við birtingu þeirra..