Meðfylgjandi lög um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um Ábyrgðasjóð launa voru samþykkt á þingi þann 12.nóvember sl.
Þau eru enn óbirt og því án númers en koma til framkvæmda þegar birt hafa verið.
Lögin eru sett vegna aðstæðna á vinnumarkaði .
Lögum um atvinnuleysistryggingar er breytt. Miða nýju lögin  að því að  greiða hærri atvinnuleysisbætur til launþega sem ráðnir eru í lækkað starfshlutfall vegna samdráttar hjá aðila  sem þeir starfa hjá. 
Hækkun bótanna felst í því að lengja  tímabilið þegar greiddar eru  tekjutengdar atvinnuleysisbætur miðað við mismun nýs og eldra starfshlutfalls. 
Einnig er í lögunum bráðabirgðaákvæði, sem veitir  sjálfstætt starfandi einstaklingum svigrúm til að taka að sér tilfallandi verkefni samhliða atvinnuleysisbótum. Í þá veru er miðað við  100 000 kr  frítekjumark. 
Einnig er lögum um Ábyrgðasjóð launa breytt á þá leið að í þeim tilvikum þegar starfshlutfall launamanns hefur verið lækkað innan við tólf mánuðum áður en krafa kemur um gjaldþrotaskipti á búi verði tekið mið af tekjum launamanns áður en kom til lækkunar á starfshlutfallinu.
Ýmis skattaleg atriði tengjast lagasetningu þessari.