Search
Close this search box.

RSK – Lög um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Skattstigar, útsvar ofl

Meðfylgjandi eru lög um ráðstafanir í ríkisfjármálum sem samþykkt voru þann 20.12.sl. Lögin eru enn óbirt. Mörg atriði varða skattamál.

Sjá lög

 

Skal hér drepið á því helsta:

1. Sóknargjöld.Breytt gjaldtaka.
2. Útsvar. Sveitarfélögum verði heimilað að hækka útsvar um 0,25 prósentustig . Hámarksútsvar færi þar með úr  13,03% í 13,28%.
Frestur til að taka ákvörðun um útsvar komandi tekjuárs 2009 var til  1. desember sl og upplýsa bar fjármálaráðuneytið um þá ákvörðun fyrir 15. desember. En hér er lagt til  að sveitarfélög hafi frest til loka árs 2008 til að taka ákvörðun um útsvarsprósentu og tilkynna hana til fjármálaráðuneytisins.
3. Tekjutenging við bætur og vistunargjöld : Sú breyting varð  á lögum um málefni aldraðra  og almannatryggingar að veg að fjármagnstekjur hafi 100% áhrif til lækkunar og breytinga í stað 50 % nú.
4. Tekjuskattur o fl honum tengt:
    a. Skatthlutfall:: Tekjuskattur einstaklinga verður hækkaður um 1,25 prósentustig, úr 22,75% í 24% á tekjuárinu 2009.
    b.Sjómannaafsláttur. Hækkun í 987 kr tekjuárið 2009 .
     c. Barnabætur Viðmiðunarfjárhæðir fyrir tekjuárið 2008 hækka um 5,7 % í barnabótum
     d. Vaxtabætur. Viðmiðunarfjárhæðir vaxtabóta fyrir tekjuárið 2008 hækka sömuleiðis um 5,7 %
     e. Innheimta:     Vaxtabótum frá og með álagningu 2009 verður ekki skuldajafnað á móti gjaldföllnum afborgunum og vöxtum af lánum Íbúðalánasjóðs og  barnabótum innheimtuársins 2009 verður ekki skuldajafnað  á móti opinberum gjöldum til ríkissjóðs, opinberum gjöldum til sveitarfélaga og vangreiddum meðlögum.
    f. Stórfyritækjaeining: Stofnun sérstakrar einingar um skattaumsýslu stórfyrirtækja  verður frestað um eitt ár og hefst 1. janúar 2010..
5. Gildistaka: Útsvarsákvæðin taka gildi þegar við birtingu laganna. Tekjukattur og sjómannaafsláttur gildir frá tekjuári 2009. Vaxtabætur og barnabætur gilda frá og með tekjuári 2008. Innheimtureglur gilda frá 2009. Að öðru leyti koma lögin til með að gilda frá 1.jan nk. ef frv. hlýtur óbreytt samþykki. 

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur