Meðfylgjandi er nefndarálit og breytingartillögur um frv. til l. um breyt. á l. um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða ofl. um útborgun úr lífeyrissjóðum oþh.
Að fram farinni athugun leggur meiri hluti þingnefndar til nokkrar breytingar á frumvarpinu.
Þessar eru þær:
A) Ríkisskattstjóra verði falið að annast eftirlit með útgreiðslum séreignarsparnaðar.
B) Útgreiðsla séreignarsparnaðar komi ekki til skerðingar á húsaleigubótum eða á bætur samkvæmt lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð.
C) Lagt er til að heimild vörsluaðila til að fresta útgreiðslu séreignarsparnaðar við sérstakar aðstæður taki einnig til þeirra sem óska þess af öðrum ástæðum
en þeim sem tilgreindar eru í frumvarpinu.
D) Sett verði í reglugerð ef vilja vill heimild vörsluaðila séreignarsparnaðar til að taka þóknun til að standa undir kostnaði vegna umsýslu við útgreiðsluna.
E) Tilvísanir eru leiðréttar.