Hér fer á eftir samþykktur lagatexti útvarpslaga hinna nýju.
Í kafla laganna er gert ráð fyrir gjaldtöku í formi skatts á einstaklinga og félög í 11.gr segir svo:
Tekjustofnar.
Tekjustofnar Ríkisútvarpsins ohf. eru sem hér segir:
1. Samkvæmt sérstöku gjaldi sem skattstjórar leggja á samhliða álagningu opinberra gjalda skv. 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Gjaldskylda hvílir á þeim einstaklingum sem skattskyldir eru skv. 1. gr. og þeim lögaðilum sem skattskyldir eru og bera sjálfstæða skattaðild skv. 2. gr. laga nr. 90/2003, öðrum en dánarbúum, þrotabúum og þeim lögaðilum sem undanþegnir eru skattskyldu skv. 4. gr. sömu laga. Skal gjaldið nema 14.580 kr. ár hvert á hvern einstakling og lögaðila. Undanþegnir gjaldinu eru þeir einstaklingar sem ekki skulu sæta álagningu sérstaks gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra eða skulu fá það gjald fellt niður skv. 2. mgr. 10. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra.
…………………………………………………………………
( 2.mgr) Um álagningu, innheimtu, eftirlit og viðurlög fer samkvæmt ákvæðum VIII.–XIV. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, eftir því sem við á.
Álagning og innheimta útvarpsgjalds.
Megintekjustofnar Ríkisútvarpsins ohf. til og með 31. desember 2008 eru gjöld fyrir útvarpsafnot, gjöld fyrir auglýsingar í hljóðvarpi og sjónvarpi og öðrum miðlum og aðrir tekjustofnar sem Alþingi kann að ákveða. Menntamálaráðherra skal staðfesta útvarpsgjöld að fengnum tillögum útvarpsstjóra.
Frá og með 1. janúar 2009 fer um tekjur félagsins skv. 11. gr.