Meðfylgjandi eru reglur fjármálaráðuneytis um skattmat 2009. Varða þær búsafurðir sem nýttar eru heimavið eða afhentar á undirverði.
Í reglunum segir
"Búsafurðir til heimanota og önnur endurgjaldslaus afhending þeirra til eigenda, starfsmanna og skylduliðs þeirra skal telja til rekstrartekna á rekstrarreikningi landbúnaðarskýrslu. Tekur skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa o.s.frv. og sjávarafla og afla eldisstöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu til óskylds aðila. Séu afurðir þessar afhentar á lægra verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og matsverðinu talinn til rekstrartekna hjá búinu. "