Ágæti viðtakandi.
Af gefnu tilefni er á það minnt að ársreikningur skal alltaf fylgja með skilum á skattframtali lögaðila, RSK 1.04, til skattstjóra.
Vinsamlegast brýnið því fyrir félagsmönnum ykkar að skila einnig ársreikningi, þegar skattframtali félags (lögaðila) er skilað til skattstjóra.
Ef ársreikning vantar með framtali er litið svo á að um ófullnægjandi framtalsskil sé að ræða og slíkt getur leitt til áætlunar skattstofna hjá viðkomandi framteljanda.
F.h. ríkisskattstjóra, |