Vakin er athygli á að ríkisskattstjóri fyrirhugar að senda út tölvupóst til allra einstaklinga sem ekki hafa enn skilað inn framtali og við höfum tölvupóstföng fyrir. Þar verður athygli þeirra vakin á því að ef framtali verður skilað innan fárra daga er mögulegt að það nái inn fyrir lok álagningarvinnu, ella verði skattastofnar áætlaðir.
Tölvupósturinn verður sendur út næstkomandi mánudag 11. júní.
Bestu kveðjur, ríkisskattstjóri