Search
Close this search box.

RSK-skattmat af landbúnaði 2007

REGLUR    um skattmat vegna tekna af landbúnaði árið 2007.
 

Til rekstrartekna á rekstrarreikningi
landbúnaðarskýrslu skal telja búsafurðir til heimanota og aðra endurgjaldslausa
afhendingu þeirra til eigenda,starfsmanna  
ofl.

Hér fer á eftir skattmat fjármálaráðuneytisins um
þetta  efni.

 


REGLUR
um skattmat vegna tekna af
landbúnaði árið 2007.

Eftirfarandi reglur um skattmat tekna af
landbúnaði á árinu 2007 eru settar skv. 118. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt,
sbr. og 2. tölul. B-liðar 17. gr. reglugerðar nr. 245/1963, um tekjuskatt og
eignarskatt. Um er að ræða mat á tekjum í búrekstri, hvort sem um er að ræða
einstaklingsrekstur eða rekstur lögaðila sem færa ber á rekstrarreikning
landbúnaðarskýrslu fyrir árið 2007.

Til rekstrartekna á rekstrarreikningi
landbúnaðarskýrslu skal telja búsafurðir til heimanota og aðra endurgjaldslausa
afhendingu þeirra til eigenda, starfsmanna og skylduliðs þeirra. Tekur
skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar
hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa o.s.frv. og sjávarafla og afraksturs
eldisstöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki
tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu
til óskylds aðila. Séu afurðir, sem falla undir reglur þessar, afhentar á lægra
verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og matsverðinu talinn
til rekstrartekna hjá búinu.

Skattmat á heimaafnotum búsafurða o.fl. vegna
tekjuársins 2007 er sem hér segir:


Mjólk
 
45 kr. hver lítri
Egg
 
290 kr. hvert kg
Kartöflur
 
41 kr. hvert kg
Rófur
 
85 kr. hvert kg
Lambakjöt
 
360 kr. hvert kg
Kjöt af veturgömlu fé
 
320 kr. hvert kg
Annað kjöt af sauðfé
 
140 kr. hvert kg
Ungnautakjöt
 
410 kr. hvert kg
Annað kjöt af nautgripum
 
290 kr. hvert kg
Folaldakjöt
 
225 kr. hvert kg
Annað kjöt af hrossum
 
90 kr. hvert kg
Grísakjöt
 
260 kr. hvert kg
Annað svínakjöt
 
195 kr. hvert kg
Kalkúnar, endur og gæsir
 
425 kr. hvert kg
Annað fuglakjöt
 
240 kr. hvert kg
Fiskur
 
250 kr. hvert
kg


Fjármálaráðuneytinu, 20. desember
2006.

F. h. r.

Baldur Guðlaugsson.

Ingibjörg Helga
Helgadóttir.

 

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur