Search
Close this search box.

RSK – Tilkynningar til allra skattstofa og félaga fagframteljenda!

TILKYNNING TIL ALLRA SKATTSTOFA OG FÉLAGA FAGFRAMTELJENDA!

Þessa dagana stendur yfir útsending ýmissa gagna til viðskiptavina skattkerfisins, þó aðallega til rekstraraðila. Búast má á næstunni við símhringingum og fyrirspurnum um upplýsingaskil vegna framtalsgerðar og annað sem tengist umræddum gögnum. Hér á eftir fer stutt yfirlit yfir þessi gögn ásamt sýnishornum og krækjum á myndir af þeim. 

1. Gagnaskil. Gagnaskilakerfið hefur verið opnað fyrir rafræn skil á launamiðum, verktakamiðum, bifreiðahlunnindamiðum, hlutafjármiðum og öðrum upplýsingum sem skylt er að skila vegna framtalsgerðar. Eins og í fyrra má nota skilalykil, staðgreiðslulykil, virðisaukaskattslykil eða aðallykil til að skila skrám beint úr bókhaldskerfum og launakerfum, en mælt er með þeim fyrstnefnda þegar aðkeyptur aðili utan félags sinnir þessum skilum. Einnig er hægt að skila skrám í gegnum vefinn eða slá upplýsingarnar inn í skilaform þar, en aðgang að þeirri leið veitir aðeins aðallykill lögaðila. Skilafrestur er til 6. febrúar ef skilað er rafrænt en ella til 26. janúar. Vakin er athygli á því að unnt er að prenta flesta miða út úr Gagnaskilakerfinu eftir skil og því ætti að vera unnt að draga mjög úr notkun launamiða í þríriti. Dregið var verulega úr prentun á þessum miðum nú og gert ráð fyrir að þeir liggi ekki frammi hjá skattstofum heldur verði afhentir að beiðni og í hóflegum mæli.

2. Veflyklabréf og bifreiðahlunnindabréf til lögaðila.

  • Veflyklabréf. Síðastliðinn föstudag var byrjað að bera út til allra lögaðila, annars vegar veflyklabréf og hins vegar bréf um skil á bifreiðahlunnindamiðum (sjá sýnishorn í viðhengjum) og því átti að ljúka í gær. Um 30.000 skattskyldir lögaðilar fengu veflyklabréf og um 7.700 óskattskyldir lögaðilar fá annars konar veflyklabréf sem sniðið er að þeirra þörfum.
  • Bifreiðahlunnindabréf. Síðan fá lögaðilar, hvort sem þeir eru skattskyldir eða óskattskyldir, jafnframt bréf (í sama umslagi) um skil á bifreiðahlunnindamiðum þar sem m.a. kemur fram upptalning á þeim ökutækjum sem talið er að viðtakandi þurfi að skila miðum vegna. Eindregið er mælt með því að launagreiðendur skili þessum miðum rafrænt í gegnum Gagnaskilakerfið.
  • Orðsendingar. Með veflyklabréfi til skattskyldra aðila fóru tvær orðsendingar; um Framtalsgerð og upplýsingaskil rekstraraðila 2007 (RSK 8.18) og um Skýrsluskil í tengslum við skattframtal 2007 (RSK 16.01, nr. 1/2007). Óskattskyldir aðilar fengu aðeins síðarnefndu orðsendinguna.

3. Bifreiðaskrár – uppfletting. Vakin er athygli á að nú er unnt að fletta upp í Bifreiðaskrám RSK 1990-2007 og það nýmæli var sett í loftið í gær að nú birtist uppreiknað verð auk verðsins eins og það var í Bifreiðaskrá viðkomandi árs. Sem kunnugt er breyttust reiknireglur bifreiðahlunninda nokkuð fyrir staðgreiðsluárið 2006 og nú reynir í fyrsta sinn á þær reglur við skil á bifreiðahlunnindamiðum og því ætti þessi uppfletting að auðvelda til muna leit að matsverði liggi það ekki fyrir úr staðgreiðsluskilum ársins. Þess ber að geta að skrá yfir nýjar bifreiðar ár hvert endurspeglar aðeins þær bifreiðar sem fáanlegar eru hjá bifreiðaumboðum hér á landi en alls ekki allar mögulegar bifreiðategundir. Í þeim tilvikum verður að finna verð sambærilegrar bifreiðar. Auk þessa er unnt að nýta þessa uppflettingu beint úr Gagnaskilakerfinu.  Sjá uppflettingu hér.

4. Framtal lögaðila. Stefnt er að því að opna vefframtal lögaðila 26. janúar nk. og gera má ráð fyrir að opnað verði fyrir vinnslu framtala í framtalshugbúnaði fagaðila, DK, fljótlega í kjölfarið. Þess ber að geta að nú hefur verið útbúið sérstakt framtalsform fyrir lögaðila sem ekki eru tekjuskattsskyldir (RSK 1.06 Skattframtal óskattskyldra lögaðila) sem eingöngu verður aðgengilegt í rafrænum skilum. Skilafrestur lögaðila er til 31. maí en framlengdur frestur fagframteljenda er til allt að 10. september.

5. Launaframtal – rafræn skil og pappír. Nú eiga allir sem greiða laun, þ.m.t. óskattskyldir lögaðilar, þess kost að skila sundurliðun á launagreiðslum (stofni til tryggingagjalds) rafrænt og þurfa þar af leiðandi ekki að skila Launaframtali RSK 1.05 á pappír. Hjá einstaklingum með rekstur er það hluti af samræmingarblaði RSK 4.05, hjá fyrirtækjum í atvinnurekstri er það hluti af skattframtali rekstraraðila RSK 1.04 og hjá  félögum sem undanþegin eru tekjuskatti er það hluti af skattframtali óskattskyldra lögaðila, RSK 1.06. Stefnt er að því að senda síðastnefnda hópnum, sem telur um 1.500 aðila, bréf til að kynna þeim sérstaklega að launaframtalinu sé nú unnt að skila á vefnum og frestur til þeirra skila sé til 31. maí nk.

6. Gíróseðill fjármagnstekjuskatts (RSK 5.20) ásamt orðsendingum. Þessi gíróseðill verður borinn í hús í dag, þriðjudag, til allra lögaðila og valins hóps einstaklinga sem kunna að eiga að gera skil á afdreginni staðgreiðslu af fjármagnstekjum. Alls voru það um 27.600 lögaðilar og 800 einstaklingar sem fengu sendan seðil. Með seðlinum fengu allir orðsendingu Um skil á afdreginni staðgreiðslu af fjármagnstekjum (RSK. 5.39). Einnig var hlutafélögum og einkahlutafélögum í þessum hópi send sérstök orðsending um Skil á hlutafjármiðum til skattyfirvalda (RSK 6.02). Þess má geta að eindagi fjármagnstekjuskatts er 30. janúar nk.

7. Staðgreiðsluskýrslur. Staðgreiðsluskýrslur verða á morgun sendar til þeirra sem ekki eru í rafrænum skilum. Að þessu sinni er sendur heilsársskammtur af skýrslum til einstaklinga með rekstur en hálfsársskammtur til lögaðila sem jafnframt fá sendan sama skammt af staðgreiðslusundurliðunum. Með skýrslunum fer orðsending til launagreiðenda nr. 3/2007, Staðgreiðsla og tryggingagjald (RSK 6.01).

8. Virðisaukaskattsskýrslur – ársskil. Virðisaukaskattsskýrslur verða bornar út á morgun til aðila í ársskilum sem ekki eru í rafrænum skilum. Skýrslunni fylgja tvær orðsendingar; um Skýrsluskil í tengslum við skattframtal 2007 (RSK 16.01, orðs. nr. 1/2007), um Ársskil – skil á virðisaukaskatti fyrir árið 2006 (RSK 16.01, orðs. nr. 2/2007) og Leiðréttingarskýrsla virðisaukaskatts (RSK 10.26).

9. Fyrirframgreiðsluseðlar. Verið er að vinna við árlega álagningu fyrirframgreiðslna utan staðgreiðslu í samvinnu við fjársýslu ríkisins. Búist er við að álagningarseðlar verði sendir út á næstu dögum.

10. Reiknað endurgjald. Tilkynning um hækkun á reiknuðu endurgjaldi hefur verið borin út til liðlega 11.200 sjálfstætt starfandi einstaklinga (sjá hér RSK 6.08). Samkvæmt ákvörðun fjármálaráðherra hækkaði lágmark reiknaðs endurgjalds um 9,6% frá fyrra ári (sjá hér).  Gjaldendum hafa frest til 6. febrúar til að gera athugasemdir við hækkunina. Tilkynning þessi var að berast viðtakendum í byrjun síðustu viku eða fyrr.

Með bestu kveðjum,
ÞJÓNUSTUSVIÐ RÍKISSKATTSTJÓRA 

 

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur