Nr. 99/2007 |
31. janúar 2007
|
|
AUGLÝSING |
||
ríkisskattstjóra um framlengingu á úrskurðarfresti. | ||
Frestur skattstjóra til að úrskurða kærur vegna álagningar opinberra gjalda á lögaðila 2006 er hér með framlengdur til 19. apríl 2007. Ákvörðun þessi, sem byggir á heimild í 120. gr. laga nr. 90/2003, tekur þegar gildi. Reykjavík, 31. janúar 2007. Ingvar J. Rögnvaldsson vararíkisskattstjóri. |