23.12.2015
Upplýsingar um staðgreiðslu, barnabætur, vaxtabætur, virðisaukaskatt o.fl. á árinu 2016.
Staðgreiðsla skatta 2016 er reiknuð í þremur þrepum. Útreikningur fyrir mánaðartekjur er sem hér segir:
- Af fyrstu 336.035 kr. 37,13%
- Af næstu 500.955 kr. 38,35%
- Af fjárhæð umfram 836.990 kr. 46,25%
Frádráttur vegna lífeyrisréttindaHeimill frádráttur vegna greiðslu launþega til almennra lífeyrisréttinda er 4% af iðgjaldsstofni. Heimill frádráttur vegna séreignarsparnaðar er 4%.
Persónuafsláttur
Persónuafsláttur er 51.920 kr. á mánuði.
Skattlagning barna
Börn fædd 2001 og síðar greiða 6% af tekjum yfir 180.000 kr.
Laun frá fleiri en einum launagreiðanda
Þeir sem hafa laun frá fleiri en einum launagreiðanda þurfa að gæta þess að rétt hlutfall sé notað við útreikning á staðgreiðslu. Fari laun yfir 336.035 kr. hjá einum launagreiðanda þarf að reikna 38,35% staðgreiðslu af launum hjá öðrum launagreiðendum, eða eftir atvikum 46,25%.
Tryggingagjald
Tryggingagjald er 7,35%.
Fjársýsluskattur
Fjársýsluskattur er 5,5%.
Fjármagnstekjuskattur
Skattur á fjármagnstekjur er 20%.
Barnabætur, vaxtabætur o.fl.
Barnabætur
Barnabætur með fyrsta barni hjóna eru 199.839 kr. og með hverju barni umfram eitt 237.949 kr. Með fyrsta barni einstæðs foreldris eru þær 332.950 kr. og með hverju barni umfram eitt 341.541 kr.
Skerðingarmörk vegna tekna eru 4.800.000 kr. hjá hjónum og 2.400.000 kr. hjá einstæðu foreldri. Bæturnar skerðast um 4% af tekjum umfram þessi mörk fyrir eitt barn, 6% fyrir tvö börn og 8% ef börnin eru þrjú eða fleiri.
Viðbótargreiðsla með hverju barni yngra en 7 ára er 119.300 kr. og skerðist um 4% af tekjum umfram ofangreind mörk.
Vaxtabætur
Hámark vaxtabóta er 400.000 kr. fyrir einhleyping, 500.000 kr. fyrir einstætt foreldri og 600.000 kr. fyrir hjón/sambúðarfólk.
Vaxtagjöld til útreiknings vaxtabóta geta ekki orðið hærri en 7% af eftirstöðvum skulda vegna íbúðarkaupa og að hámarki 800.000 kr. hjá einhleypingi, 1.000.000 kr. hjá einstæðu foreldri og 1.200.000 kr. hjá hjónum og sambúðarfólki. Skerðing vegna tekna er 8,5% af tekjustofni.
Vaxtabætur einhleypinga og einstæðra foreldra byrja að skerðast við nettóeign 4.000.000 kr. og falla niður þegar hún nær 6.400.000 kr. Vaxtabætur hjóna og sambúðarfólks byrja að skerðast við nettóeign 6.500.000 kr. og falla niður þegar hún nær 10.400.000 kr.
Fjármagnstekjuskattur
Skattur á fjármagnstekjur er 20%. Frítekjumark vegna vaxtatekna er 125.000 kr. á mann. Frádráttur vegna leigutekna manna af íbúðarhúsnæði til búsetu leigjanda er 50% af leigutekjum. Frítekjumark gildir ekki um arð, söluhagnað og leigutekjur af öðru en íbúðarhúsnæði sem nýtt er til búsetu leigjanda.
Gjald í framkvæmdasjóð aldraðra
Gjald í framkvæmdasjóð aldraðra er 10.464 kr. á einstaklinga sem fæddir eru 1946 og síðar og eru með tekjur yfir 1.637.600 kr. á ári. Undanþegin eru börn innan 16 ára aldurs.
Útvarpsgjald
Útvarpsgjald er 16.400 kr. á einstaklinga sem fæddir eru 1946 og síðar og eru með tekjur yfir 1.637.600 kr. á ári. Undanþegin eru börn innan 16 ára aldurs.
Skattlagning lögaðila
Tekjuskattur hlutafélaga, einkahlutafélaga og samvinnufélaga er 20% við álagningu 2015.
Tekjuskattur annarra lögaðila er 36% og gildir það m.a. um sameignar- og samlagsfélög, þrotabú og dánarbú.