Reglurnar sem eru í ofangreindum kafla og varða heimagistinguna tóku gildi 1. janúar 2017. Gilda þær um leigutekjur á þessu ári (álagning 2018).
Þannig eru þeim gerð skil :“Heimagisting”
Ef útleiga manns á húsnæði fellur undir þær reglur sem gilda um heimagistingu samkvæmt lögum um
veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og hún hefur verið tilkynnt sýslumanni og fengið skráningarnúmer
telst vera um að ræða fjármagnstekjur sem skattlagðar eru sem slíkar, án nokkurs frádráttar. Skilyrði er m.a
að heildartekjur af útleigunni séu ekki umfram 2.000.000 kr. á tekjuárinu hvort sem leigð er út ein eða tvær fasteignir.
Ef eignin/eignirnar er í eigu fleiri en eins manns þarf að taka tillit til heildartekna allra eigenda og fari þær samtals
yfir 2.000.000 kr. á tekjuárinu skal fara með útleiguna eins og atvinnurekstrartekjur hjá þeim öllum.
Ef heildarleigutekjur af útleigu til ferðamanna fara yfir 2.000.000 kr. á tekjuárinu, eða sýslumaður fellir niður skráningu
viðkomandi eignar sem heimagistingar, þá teljast allar tekjur af útleigunni til atvinnurekstrartekna.
Teljist útleiga manns á húsnæði til ferðamanna ekki til heimagistingar samkvæmt þeim reglum sem um hana gilda
er um að ræða atvinnurekstrartekjur sem gera ber upp eftir því sem um slíkar tekjur gildir. ”