Nr. 531 6. júní 2012
REGLUR
um breyting á reglum nr. 1283/2011, um skattmat vegna tekna manna tekjuárið 2012.
1. gr.
Eftirfarandi breyting verður á fjárhæðum vegna dagpeninga innanlands í kafla 3.2 Frádráttur á móti dagpeningum:
kr.
Fyrir gistingu og fæði í einn sólarhring 27.700
Fyrir gistingu í einn sólarhring 17.780
Fyrir fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag 9.920
Fyrir fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag 4.960
2. gr.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðluðust gildi og komu til framkvæmda frá og með 1. júní 2012.
Ríkisskattstjóri, 6. júní 2012.
Skúli Eggert Þórðarson.
Ingvar J. Rögnvaldsson.
__________
B-deild – Útgáfud.: 20. júní 2012