Námskeið fræðslunefndar
SKATTMAT, HLUNNINDI OFL.
Guðbjörgu Þorsteinsdóttur hjá Deloitte
Námskeiðið er bæði í boði í stað og fjarkennslu.
Guðbjörg mun fara yfir skattmatið og hlunnindamálin auk raunhæfra dæma úr skattframkvæmdinni þ.e. hvað skatturinn er að einblína á. Hún mun einnig fara aðeins yfir séreignalífeyrissjóðinn.
Fyrirlesari: Guðbjörg Þorsteinsdóttir lögmaður og eigandi hjá Deloitte hefur áður verið með fyrirlestur hjá okkur við mjög góðar undirtektir.
Námskeiðið verður haldið í stofu hjá Promennt, Skeifunni 11b, 2 hæð miðvikudaginn 11. Júní frá kl. 9.00 – ca 11.00. (ath. Takmarkað sætaframboð í stofu) Boðið verður uppá smá morgunhressingu frá kl. 8.30 – 9.00
Námskeiðið verður einnig á Zoom í beinni (ekki upptaka)
ATH. Námskeiðið verður bæði í boði á staðnum: Promennt, Skeifan 11b, 2 hæð og á Zoom (fjarkennsla)
Aðeins 25 sæti í boði í stofu (Promennt)
Verð fyrir félagsmenn kr. 6900. – Fyrir fólk utan félags kr. 8.900.-
ATH. Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til þátttöku á námskeiðinu.
Námskeiðið gefur 3,0 endurmenntunarpunkta
Skráning er á vef FVB til og með þriðjudagsins 10. Júní nk.
Fræðslunefndin