Góðan dag.
Póstur þessi er sendur til að árétta notkun Stafræns pósthólfs sbr. lög nr. 105/2021, um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.
Skatturinn vill sérstaklega beina því til lögaðila að bréf eru eingöngu birt í Stafrænu pósthólfi viðkomandi lögaðila. Nánari umfjöllun má finna hér: Stafrænt pósthólf | Skatturinn – skattar og gjöld
Við viljum sérstaklega ítreka að erindin geta verið af ýmsum toga svo sem beiðni um gögn, fyrirhugaðar ákvarðanir, boðun og álagning dagsekta o.fl. Það er því mikilvægt að fylgjast með Stafræna pósthólfinu. Við beinum því til félaga að farið sé inn á mínar síður á Ísland.is og skráð fyrir hnippum (mínar stillingar). Félög geta einnig nálgast bréf sín á þjónustusíðu Skattsins ef þau sækja um veflykil en hafa ber í huga að eingöngu er hægt að skrá sig fyrir hnippum með rafrænum skilríkjum á Ísland.is
Sérstök athygli er vakin á því að bréf til umboðsmanna eru hvorki send inn í persónulegt pósthólf viðkomandi umboðsmanna né til fyrirtækja sem þeir starfa hjá.
Með góðri kveðju.
Kveðja / Regards