Ágætu endurskoðendur og bókarar
Enn er minnt á mikilvægi þess að skil á launamiðum séu á réttum tíma. Nú er unnið að því að árita upplýsingar inn í framtalsforrit til að upplýsingar birtist á framtölum 2012 þegar þau verða opnuð.
Er því þeim sem ekki hafa lokið launamiðaskilum að gera það nú þegar. Í því felst einnig að skila hlunnindaupplýsingum og öllum verktakamiðum.
Verktakagreiðslur undir kr. 500 þúsund að uppfylltum vissum þröngum skilyrðum, eru áritaðir inn á framtöl.
Ríkisskattstjóri þakkar þeim endurskoðendum og bókurum sem sinnt hafa lögbundinni skilaskyldu sinni nú þegar.
Kveðja / Regards
Skúli Eggert Þórðarson