Ágætu endurskoðendur og bókarar
Vinsamlegast athugið að á næstu vikum verður mikið álag á símkerfi ríkisskattstjóra og erfitt getur reynst að ná sambandi við þjónustuver og aðra starfsmenn.
Til að þjónusta endurskoðendur og bókara hefur símanúmerið 442 1717 verið virkjað að nýju en þar er símatími frá kl. 09,30 – 12,00 mánudaga til föstudaga. Vinsamlegast athugið að um er að ræða símsvörun sem eingöngu er ætluð fagaðilum, endurskoðendum, bókurum og lögmönnum. Ekki eru þó veittar þar upplýsingar um tæknimál.
Athugið að símanúmer fagaðila er 442 1717.
Kveðja / Regards
Skúli Eggert Þórðarson