Til endurskoðenda, bókara og bókhaldsstofa.
Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að framlengja síðasta skilafrest á lögaðilaframtölum framtalsársins 2011 til og með þriðjudagsins 20. september 2011.
Frestur þessi er einvörðungu fyrir þá sem atvinnu hafa af framtalsgerð.
Enda þótt að formlegum fresti ljúki 20. september 2011 verður leitast við að taka við innsendum framtölum eftir þann tíma, eins og tök verða á.
Ríkisskattstjóri leggur á það áherslu að framtölum sé skilað jafnóðum og lokið sé við gerð þeirra. Er þess eindregið vænst að endurskoðendur og bókarar sýni því skilning og leggi sig fram um að innsending framtala sé jöfn eftir því sem tök eru á.
Kveðja / Regards
Skúli Eggert Þórðarson