Til endurskoðenda, bókhaldsstofa og viðurkenndra bókara.
Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að framlengja síðasta skilafrest á lögaðilaframtölum framtalsársins 2012, vegna rekstrar á árinu 2011 til og með miðvikudagsins 20. september 2012.
Frestur þessi er einvörðungu fyrir þá sem atvinnu hafa af framtalsgerð.
Þótt formlegum fresti ljúki 20. september 2012 verður leitast við að taka við innsendum framtölum eftir þann tíma, eins og tök verða á, enda standist þau skoðun.
Ríkisskattstjóri fer eindregið fram á að framtölum sé skilað jafnóðum og lokið sé við gerð þeirra. Óskað er eftir endurskoðendur og bókarar sýni nauðsyn þessari skilning og sendi framtöl inn svo fljótt sem unnt er.
Daganna 21. og 22. september 2012 mun ríkisskattstjóra birta auglýsingu um að allir frestir til að skila framtölum séu liðnir.
Kveðja / Regards
Skúli Eggert Þórðarson