Í sl. viku útskrifust 46 viðurkenndir bókarar við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu. Fulltrúar frá félaginu voru á staðnum með kynningu á félaginu og buðu nýúskrifaða að ganga formlega í félagið sem 36 þáðu. Vonumst við til að á næstu dögum komi þessir 10 í viðbót einnig í félagið. Nú eru liðin 8 ár frá fyrstu útskriftinni en þá útskrifuðust 10 viðurkenndir bókara. Ráðuneytið hefur því veitt 251 bókara starfsleyfi á þessum 8 árum. Hér fylgir með mynd sem tekin var við þetta hátíðlega tækifæri:
Útskriftarnemar, til hamingju með árangurinn og velkomin í okkar raðir!