Ágætu félagsmenn
Stjórnin sér sig knúna til að koma eftirfarandi tilkynningu til ykkar.
Því miður hefur borið á því að félagsmenn hafa skráð sig á námskeið á okkar vegum og ekki mætt, án þess að tilkynna forföll. Þetta veldur því að kostnaður sem til fellur vegna þessa, gjaldfærist á félagið.
Því verður sú breyting gerð hjá okkur, að ef félagsmaður tilkynnir þátttöku á námskeið og mætir ekki, þá mun hann fá sendan greiðsluseðil fyrir þátttökunni. Ef félagsmaðurinn hefur hins vegar afboðað sig með sólarhrings fyrirvara þá mun hann ekki fá greiðsluseðil.
Stjórnin