Search
Close this search box.

“Skýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um úrbætur á tekjuskattskerfi einstaklinga og barna- og vaxtabótum

27.11.2015

Aþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur að beiðni fjármála- og efnahagsráðherra unnið úttekt á tekjuskattlagningu einstaklinga og barna- og vaxtabótakerfunum með frekari úrbætur í huga, en síðustu ár hefur markvisst verið unnið að því að einfalda íslenska skattkerfið á sem flestum sviðum. Skýrsla sjóðsins um úttektina liggur nú fyrir ásamt hugmyndum að mögulegum breytingum á kerfunum.

Hugmyndir sérfræðinga AGS um mögulegar breytingar kerfanna eru í stuttu máli nokkuð róttækar miðað við gildandi tekjuskatts- og bótakerfi. Á það bæði við um uppbyggingu tekjuskattsálagningar og bótakerfanna. Helstu niðurstöður skýrslunnar eru eftirfarandi:

  • Framtíðarúrbætur á íslenska tekjuskattskerfinu ættu að beinast að breytingum á persónuafslætti, lægra tekjuskattshlutfallinu, barnabótum og vaxtabótum.
  • Persónuafsláttur verði hækkaður og greiddur út til þeirra sem náð hafa 18 ára aldri, nýtist hann ekki að fullu á móti álögðum skatti.
  • Barna- og vaxtabótakerfi verði einfölduð og bótum beint í ríkari mæli að lágtekjuheimilum.
  • Ein föst fjárhæð barnabóta verði reiknuð fyrir hvert barn undir 18 ára aldri, óháð fjölskyldugerð.
  • Skerðingarhlutfall barnabóta verði eitt og hækki töluvert frá því sem nú er.
  • Vaxtabætur verði felldar niður í áföngum á næstu árum.
  • Breytingar vaxtabóta falli að allsherjarendurskoðun á húsnæðisstuðningi stjórnvalda.

Ráðherra hefur  nú falið sérfræðingum ráðuneytisins að taka skýrsluna í heild og einstaka efnisþætti hennar til gaumgæfilegrar skoðunar sem lið í mótun stefnu á sviði tekjuskattlagningar einstaklinga til framtíðar.  Í þessu samhengi má benda á að í ráðuneytinu er nú þegar unnið að útfærslu tillagna um stuðning ríkisins við þá sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð, samhliða úrbótum á vaxtabótakerfinu.”

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur