Samkvæmt óvísindalegri könnun, sem var framkvæmd á www.ja.is, kom í ljós að aðeins 22 aðilar hafa starfsheitið "viðurkenndur bókari" í símaskránni. Þar af eru 21 í Fvb. Þar sem fjöldi félagsmanna er nú orðinn 168 eru þetta því bara 12,5%.
Nú er tilgangur félagsins m.a. að vinna að kynningu á starfssviði félagsmanna. Undirrituð smellti sér því í snatri á http://ja.is/undirsidur/skraningar/breyting_simaskra/ til þess að skrá starfsheitið og hvetur jafnframt "óskráða" félagsmenn til að gera slíkt hið sama.
Eva María Guðmundsdóttir
ritari Fvb