Tækni og vit 2007
Stórsýning tileinkuð tækniþróun og þekkingariðnaði, Tækni og vit 2007, verður haldin í Fífunni í Smáranum, Kópavogi, 8. – 11. mars nk. Markmið sýningarinnar er að kynna nýjungar og þjónustu sem í boði er í hátækni- og þekkingariðnaði og þá áhugaverðu þróun sem hefur átt sér stað á undanförnum árum. Einnig að kynna hvaða tækifæri eru til staðar fyrir tækni- og þekkingarfyrirtæki varðandi aðstöðu, fjármögnun og þjónustu.