Search
Close this search box.

Tímabundin niðurfellingálags vegna skila á VSK hjá aðilum í landbúnaðarskrá

28.8.2009

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 57/2009

Samkvæmt lögum og reglugerð um virðisaukaskatt er 1. september 2009 gjalddagi virðisaukaskatts vegna uppgjörs aðila á landbúnaðarskrá vegna viðskipta á fyrri hluta ársins 2009.

Sé virðisaukaskattur ekki greiddur á tilskildum tíma skal aðili sæta álagi til viðbótar þeim skatti sem honum bar að standa skil. Sama gildir ef virðisaukaskattsskýrslu hefur ekki verið skilað eða verið ábótavant og virðisaukaskattur því áætlaður. Þá skal aðili sæta álagi ef endurgreiðsla skatts hefur verið of há. Í lögunum kemur fram að fella megi niður álag ef aðili færir gildar ástæður sér til málsbóta og geti skattyfirvöld metið það í hverju tilviki hvað telja skuli gildar ástæður í þessu sambandi.

Vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem ríkja í þjóðfélaginu telur ráðuneytið að gildar ástæður séu til að beita heimild laganna til tímabundinnar niðurfellingar álags vegna skila á virðisaukaskatti fyrir uppgjör aðila á landbúnaðarskrá vegna fyrri hluta ársins 2009.

Ráðuneytið hefur beint þeim tilmælum til skattstjóra að fellt verði tímabundið niður álag vegna skila á ofangreindum virðisaukaskatti sem á gjalddaga er 1. september 2009 og gildi sú niðurfelling í átta daga eða til 9. september 2009.

Fjármálaráðuneytinu 28. ágúst 2009

 

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur