Góðan daginn.
Langar til að benda á frétt á vefsíðu Skattsins um tekjufalls- og lokunarstyrki, sbr. hér.
Því miður hefur smíði á umsókn um tekjufallsstyrki tekið lengri tíma en áætlað var af hálfu Skattsins – en stefnt var að því að hefja móttöku á umsóknum fyrir jól. Eins og fram kemur í greindri frétt er ákvörðun á tekjufallsstyrkjum mjög margþætt, taka þarf mið af fjölmörgum atriðum sem spila síðan saman. Allt þetta tekur tíma í vinnslu ef umsóknin á raunverulega að vera rafræn. Aftur á móti á afgreiðsla þeirra umsókna sem standast mál og útgreiðsla styrkja í kjölfarið einungis að taka örfáa daga.
Afgreiðsla á lokunarstyrkjum er í fullum gangi og búið að greiða út um 718 milljónir kr. til 294 rekstraraðila. Miðað við stöðuna síðdegis í gær voru nánast allar fullbúnar umsóknir afgreiddar en töluverður fjöldi umsækjenda átti eftir að ljúka við sína umsókn með undirritun.
Eitthvað hefur verið um það að þeim sem ekki reiknuðu sér nein laun fyrir október mánuð hefur verið neitað um lokunarstyrk strax í upphafi á útfyllingu umsóknar. Þetta hafa t.d. verið hárgreiðslufólk sem sótti um og fékk atvinnuleysisbætur á meðan á lokun stóð og skilaði ekki staðgreiðslu fyrir umræddan mánuð vegna sjálfs síns (mest einyrkjar). Búið er að leiðbeina þeim sem hafa haft samband með það að reikna sér endurgjald vegna fyrstu dagana í október og senda inn staðgreiðsluskilagrein vegna þess. Eftir að sú skilagrein er komin getur viðkomandi sótt um lokunarstyrk því þá er kominn starfsmaður í október – en þar lá hundurinn grafinn – það verður að vera eitthvað stöðugildi fyrir hendi til þess að styrkur reiknist yfir höfuð.
Með bestu óskum um gleðilega hátíð framundan.
Kveðja / Regards